|
Ágúst
2009
Ljósmyndasýning á
Menningarnótt
Náttúrukortið (www.natturukortid.is)
stendur
að ljósmyndasýningu á Menningarnótt
í Reykjavík.
Þar verða sýndar íslenskar
landslagsmyndir eftir: Ellert Grétarsson, Christopher Lund,
Hauk Snorrason, Jóhann Ísberg, Mats Wibe Lund, Pál Stefánsson,
Ragnar Axelsson, Sigurgeir Sigurjónsson og Thorsten Henn.
Myndunum verður varpað á húsgafl Skólavörðustígs 1.
--------------------------------------------------
Ágúst
2009
Ljósanætursýning í Sambíóunum
Næsta ljósmyndasýning elg verður á
komandi Ljósanótt í Reykjanesbæ. Að þessu sinni verður farið út
fyrir hefðbundið sýningarform. Í stað þess að hengja myndir upp á
vegg í sýningarsal verða þær látnar leika um hvíta tjaldið undir
hljómfalli fegurrar tónlistar. Sýningin er í boði Sambíóana í
Keflavík. Flutningar hennar tekur 15 mínútur og verður hún keyrð
nokkrum sinnum yfir Ljósanæturhelgina. Sýningartímar verða
auglýstir síðar. Aðgangur verður ókeypis.
Sýningin heitir Ísland er land þitt og hefur að geyma
myndir Ellerts af landslagi og náttúru landsins.
--------------------------------------------------

Júní
2009.
Ljósmyndir elg til sölu í
Máli og myndum
Landslagsljósmyndir Ellerts Grétarssonar
fást nú í versluninni Í máli og myndum (áður Innrömmun Suðurnesja) í
verslunarmiðstöðinni Krossmóá 4 í Reykjansebæ.
Myndirnar eru seldar í tveimur stærðum
í kartoni og kosta 2900 og 3400 kr.
--------------------------------------------------

Apríl
2009.
Myndaveisla í Náttúrukortinu
Umhverfisráðherra opnaði síðastliðið
haust Náttúrukortið á vefnum. Náttúrukortið er kort af Íslandi sem
gefur yfirsýn yfir þau svæði sem hafa verið nýtt eða
fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu fyrir stóriðju eða raska á
annan hátt.
Á kortinu er mikill fjöldi glæsilegra ljósmynda
frá þekktustu ljósmyndrum landsins
og sýna þær glögglega náttúrufegurð
þessara svæða.
Á meðal þeirra ljósmyndara sem eiga myndir í kortinu eru Ragnar
Axelsson, Ellert Grétarsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Páll
Stefánsson, Mats Wibe Lund, Jóhann Ísberg, Haukur Snorrason,
Thorsten Henn, Christopher Lund og fleiri.
Sjá nánar
hér.
--------------------------------------------------

Mars
2009.
The People Behind
Focus on Nature
-Focus
on Nature News
----------------------

Október
2008.
Ný
ljósmyndabók - New book Ljósmyndabókin
Faces and Figures er komin í sölu á blurb.com. Bókin er 40
síður og innheldur ljósmyndirnar af sýninguni Fés og fígúrur
sem var að ljúka í Fótógrafí við Skólavörðustíg 4. Í
bókinni eru einnig nokkrar myndir úr þessu ljósmyndaverkefni sem
ekki voru á sýningunni.
Myndirnar sýna hinar furðulegustu kynjamyndir sem orðið
hafa á vegi ljósmyndarans í íslenskri náttúru. Hægt er að
skoða sýnishorn og kaupa bókina með því að smella hér
eða á myndina af kápunni hér efst.
------------------------------------------------ 
Vinningsmyndirnar
úr PX3 keppninni voru sýnar í Acte2 galleríinu í París.
Júlí
2008.
Peoples Choice
Award Ellert
Grétarsson var í öðru sæti í flokki atvinnumanna í
náttúruljósmyndun í Peoples Choice Award
netkosningu PX3 ljósmyndakeppninnar í París. Eftir að úrslit
keppninnar lágu fyrir gat almenningur kosið þær ljósmyndir sem
hann vildi sjá í vinningssætunum. Hátt í 40 þúsund
atkvæði voru greidd í fyrra og var fjöldinn eitthvað
svipaður
nú.
Ellert hlaut annað sætið með myndröðina Faces of the Nature
en athygli vekur að hún komst ekki á blað hjá 17 manna
dómnefnd keppninnar þar sem Ellert sigraði í sama flokki með
aðra myndröð, Colors of the Nature. Sú myndröð komst
hins vegar ekki á blað í netkosningunni.
Kjósendur voru hins vegar sammála dómnefndinni með
glitskýjaseríu Ellerts og kusu hana í fyrsta sæti í
undirflokknum Nature-Sky.
Þá varð bergrisaserían kosin í fyrsta sæti í opnum flokki
náttúruljósmyndunar
Úrslit
kosningarinnar má sjá
hér
--------------------------------------------------------------
-----------------------------------------------------------------
n
|