Krýsuvík

Copyright: Ellert Grétarsson

Krýsuvík - næsta náttúrufórn á altari erlendrar stóriðju.


Horft til Seltúns frá Austurnengjahæð. Ketilstígur liggur um skarðið til hægri. Gaman er að leggja lykkju á leið sina um stíginn, ganga upp á Sveifluhálsinn ofan við Seltún, virða fyrir sér útsýnið eða skoða furðulegar móbergsmyndanir þar uppi.

Ein af hugmyndum Landsnets um línuleiðir gengur út á að leggja háspennulínuna yfir Seltún og yfir hálsinn ofan í Ketilstíginn.