|
-
Forsíða elg.is
- Reykjanesfólkvangur
- Ferlir
|
|
Myndin hér að ofan er tekin yfir virkjunarsvæði Hellisheiðarvirkjunar.
Eitthvað þessu líkt gæti ásýnd Krýsuvíkur orðið. Viljum við það?
---------
Náttúrufórnir í Krýsuvík - í sátt við umhverfið?
Krýsuvík tilheyrir Reykjanesfólkvangi og er afar vinsælt útivistarsvæði
í nágrenni við mesta þéttbýlissvæði landsins.
Þessari útivistarparadís og náttúruperlum hennar stendur til að fórna
undir orkuvinnslu .Virkjunaráform í Krýsuvík hljóða upp á orkuvinnslu
samsvarandi fjórum til fimm Reykjanesvirkjunum eða 450 - 500MV.
Það er ekki erfitt að ímynda sér þá ásýnd sem svæðið fær,
gangi þessi áform erftir.
Eingöngu borstæðið undir Hverafjalli yrði átta þúsund fermetrar.
Þá er eftir að telja upp öll þau mannvirki sem þessum framkvæmdum
fylgja:
stöðvarhús, hitaveiturör, vegalagning, háspennulínur og fl.
Sumir hafa reynt að réttlæta þessi áform með þeim rökum að nú þegar sé
búið að raska svæðinu með rannsóknarborunum. Þau rök halda ekki því það
rask sem þegar hefur verið unnið er hjóm eitt í samanburði við það sem
koma skal.
Krýsuvík er ein fegursta náttúruperla Íslands. Fölbreytt litadýrð
náttúrunnar á hverasvæðunum í Seltúni og á Austurengjahæð laðar að
margan ferðamanninn
og náttúruunnandan. Krýsuvík er meðal vinsælustu viðkomustaða
erlendra ferðamanna í dagsferðum frá Reykjavík.
Eru bæjarbúar í Hafnarfirði sáttir við að helstu útivistarperlu þeirra
verði breytt í orkuvinnslusvæði?
|
 |
|
|
|

Myndband af kynngimagnaðri
náttúru Krýsuvíkursvæðisins.
| |